mánudagur, ágúst 14, 2006

U never walk alone, walk on, walk on 

ok ég veit ekki af hverju síðustu blogg hafa verið svona fokkin löng, trúið mér ekki einu sinni Eskimóinn nennir að lesa þau......
reynum að hafa þetta styttra.....

Það er margt að pirra Eskimóann í dag.... ekkert samt sem ég þarf að tjá mig um hér..... svefnleysi, hálshnykkur, eirðarleysi og ofdrykkja á kaffi....
Ok ein krísa.....


Háskóli Íslands hljómar ekki svo ílla þessa stundina...... (bæði ódýrari og byrjar seinna)

Týpískt fyrir Eskimóann að fá tengdó um leið og skólinn byrjar, það er ekki eins og hann hafi ekki getað tekið á móti þeim í byrjun ágúst eða lok júlí þegar allt var á fullu í að sitja á rassgatinu og horfa út í loftið......

RS PISTILL (upphitun fyrir annað kvöld)
Jæja Josh og Jill fóru heim í síðustu viku, sé pínu eftir Josh! Eskimóinn didnt see that comin..... Var að horfa á las vegas vefþáttinn á RS heimasíðunni og ástralinn og fokkin kanadana maðurinn CANT HOLD THEIR DRINKS!!!! hahahah punks!!!!
Magnificent hlustaði ekki á ráð Eskimóans sem birt voru bæði í síðustu og þarsíðustu viku og ákvað að syngja annað David Bowie cover, BOTTOM 3 FOR DEFINET!!!
Storm með I will survive, DONT LIKE THAT CHOISE....
Æi allt frekar leim í lagavalinu þessa vikuna, eina sem mig hlakkar til að sjá er Z með frumsamið lag..... sjáum hvað setur.....

Jæja nýjung á www.elsauk.blogspot.com

WHO I LOVE THE MOST
Í hverri viku ætla ég að skrifa um manneskju sem er mér kær og deila með ykkur leyndarmáli um hana.... Fyrstur í röðinni er góður vinur minn og frændi, sálufélagi með meiru mr. Hafsteinn Þór Auðunsson. Steini er einn af dyggustu lesendum þessa bloggs en hefur haldið kúlinu með því að kommenta sem minnst, klár strákur......

Steini og ég ákváðum að vera bestu vinir þegar ég var 5 mán og hann nýfæddur. Við erum svart og hvítt.... Hann er þessi rólega týpa, svo yfirvegaður, klár, listrænn, hæfileikaríkur og góðhjartaður (what I love the most).... þið sem þekkið eskimóann vitið að þessi lýsingarorð passa engan veginn við mig......
Steini tekur öllum eins og þeir eru, hann elskar frænku sína og hefur aldrei reynt að breyta neinu í fari mínu. Hann er bæði góð og falleg sál...... Við höfum alltaf verið ótrúlega náin: treystum hvor öðru fyrir öllu og hjálpum hvor öðru þegar erfiðleikar steðja að....
Hann var sá EINI sem kom og heimsótti mig þegar ég bjó úti í Englandi, og hann var líka sá eini sem ég vildi að kæmi..... I LOVE YOU MAN.....
Leyndarmál 1: Þegar við vorum lítil þá sagði Steini við mömmu sína og pabba að hann væri skotinn í mér og þau þurftu að útskýra fyrir honum að við værum frændsystkin (ath. við vorum það lítil að þau gátu ekki notað orðið sifjaspell, hahaha).....
Leyndarmál 2: Ég öfundaði hann alltaf af því að hann var betri í fótbolta en ég..... og ég vissi líka að þegar ég skoraði þá var það af því hann "leyfði" mér að skora bara til að vera góður við frænku sína...... ohhhhhhh
Staðreyndir: Steini er 23 ára, býr rétt hjá mér (hinum megin við götuna), hann er skírður eftir afa okkar (steinafa) og ég er skírð eftir Ömmu okkar (elsu ömmu) og þess vegna hafa margir talið að við náum svona vel saman þ.e we are the mini mí elsa og steini, hann er tónlistarmaður og leikari, vinnur í pennanum og ÉG ELSKA HANN AF ÖLLU MÍNU HJARTA (god knows hvar ég væri ef hann hefði ekki verið til staðar í mínu lífi)......
Oooooh hann er bara svo yndislegur og fullkominn alveg......... ég dýrka manninn.................


Jæja þetta verður ekki lengra, þessa nóttina (þó svo að ég gæti talað endalaust um steina frænda) ....
Bretinn þarf tölvuna, og eskimóinn þarf að fara í sturtu....
pís át
The stinkin eskimó

p.s ÁFRAM LIVERPOOL ............. djö vorum við góðir í gær. Erum að horfa á fyrsta sætið, deffó!!!!!!!!!!!!!!!

Comments: Sendu inn athugasemd

This page is powered by Blogger. Isn't yours?