þriðjudagur, júlí 11, 2006

its a headacke 

vá hvað eskimóinn er þreyttur.... þú veist svona rosalega þreyttur en getur ekki sofnað.....
svona eirðarlaus, eða restless hljómar aðeins nær......
ég var að hlusta á gömul lög á youtube og radio blog club..... fyrst hlustaði ég á linger með cranberries, svo hlustaði ég á massive attack, síðan hlustaði ég á faith into you með mazzy star, næst á eftir komu nokkur brit pop lög, aðalega divine comidy og líka aðeins eldra stuff, jam og smiths.......

ég er búin að fatta að ég er addickt..... ég er húkkt á að hlusta á tónlist, það eina sem ég get ekki sleppt ... ég get sleppt að reykja, drekka og horfa á sjónvarpið en verð að hlusta á ákveðna tónlist áður en dagurinn endar....

af hverju þarf ég alltaf að rífast þegar ég er eirðarlaus?????

ég verslaði og verslaði og verslaði um helgina, bæði á mig og bretann.... námslánið kom inn og þrátt fyrir að það var töluvert lægra en við bjuggumst við þá eyddum við því without a blink og gott betur..... mér líður ekkert smá vel í nýju gráu mod gallabuxunum mínum og mér líður ekkert smá vel með nýja svarta armbandið.... og nýja body lotionið mitt og rakamaskann....
ég á líka 2 nýja skó, 3 nýja boli, svartan sjúklega flottan kjól og nýtt belti..... nú vantar mig bara nýjan og betri persónuleika og þá verð ég good to go..... já og ég á líka pils.....

Af hverju verð ég vond við alla í kringum mig þegar ég er eirðarlaus????

svo labbaði ég laugaveginn með bretaling og hékk á kaffihúsum allann laugardaginn, mér leið eins og ég væri í draumi, labbandi um með flottustu sólgleraugun, í geðveikri sól, með uppáhalds manninum mínum í heiminum og allt var svo fallegt í kringum okkur..... íslandið lítur svo miklu betur út í sól, er það ekki???
Samt leið mér alltaf best í miðjum janúar, í myrkrinu fyrir norðan..... hmmmmm

af hverju er ég alltaf svona pirrandi við alla í kringum mig þegar ég er eirðarlaus????

Ég er orðin svo þreytt á þjóðarstoltinu í okkur íslendingum.... vissuð þið að íslenska vatnið er aðeins það fimmtánda í röðinni þegar kemur að besta vatni í heiminum....

af hverju er ég svona fokkin eirðarlaus??????

Um hvað ætli Kurt Cobain hafi verið að hugsa þegar hann samdi polly.... ég átti einu sinni páfagauk sem hét belli og hann hreyfði hausinn alltaf upp og niður þegar ég spilaði það fyrir hann......


ljósapera dagsins....
the restless eskimó

Comments: Sendu inn athugasemd

This page is powered by Blogger. Isn't yours?