sunnudagur, febrúar 04, 2007
I luv everyone around me- exept that guy that´s smellin me
og þið vitið hver þið eruð.............
og nú fann ég passwordið mitt.........
og á því að geta bloggað á næstunni.......
ég elska þegar allt passar svona vel....
hvað á ég að gera næst....
kiss og knús
ást og kossar
eskimóinn
föstudagur, september 22, 2006
We all live in a yellow supmarine
1. mæta í skólann, MÆTTU KELLING!!!!
2. fara í vísó á eftir og reyna að halda bjórnum niðri
3. endurskoða mataræðið, henda út nokkrum aukakílóum
4. gera eitthvað við anskotans hárið á mér, GULUR IS NOT WORKIN, eitthvað sem kostar ekki mikið, t.d beljuhland í fötu.
5. reyna nú einu sinni við góða einkunn í míðannaprófi
6. finna út á hvaða sáttmála og ákvæði danski BOOTLEG dómurinn féll á, EES?
7. finna út hvað BOOTLEG þýðir
8. finna út af hverju anskotans bloggerinn virkar ekki
.................og svo mætti áfram telja.....
þetta eru minnispunktar vikunnar sem er að líða, eða dagsins sem er að byrja þar sem þetta er fyrsti dagurinn í langan tíma sem mér finnst ég vera lifandi....
Steini kom áðan, Glyn hringdi frá Ástralíu, ella hringid til að minna á vísindaferðina rosalegu og ég held að þetta sé bara allt í áttina...
ITS ALL FUN AND GAMES FROM NOW ON
hver er tilgangurinn að sökkva sér í þunglyndi yfir peningum, skóla eða veikindum....
ESKIMÓINN SÉR ENGANN TILGANG ....
þannig að nú er ég að fara í sturtu og setja á mig augnskugga , JIBBÝ
PUNKS AND BITCHES
bið ég ykkur vel að lifa
ekimó
p.s er ekki á sýrutrippi, mér líður bara svona í dag, tómar sápukúlur og eggjabikarar.
þriðjudagur, september 19, 2006
Loksins, loksins, loksins.....
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, kynnti á ríkisstjórnarnfundi tvö frumvörp en í öðru þeirra er lagt til að hugtakið nauðgun verði rýmkað mjög frá því sem nú er og refsingar við slíku broti hertar upp í allt að 16 ára fangelsi. Einnig er kveðið á um refsingu fyrir samræði eða önnur kynferðismök við barn undir 14 ára aldri, að refsimörk verði þau sömu og fyrir nauðgun.
Rýmkun hugtaksins er á þá leið að nauðgun teljist „önnur kynferðisnauðung og misnotkun á bágu andlegu ástandi“ og því að þolandi „geti ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans". Við það muni brot þessi varða mun þyngri refsingu en nú er, fangelsi frá einu ári og allt að 16 árum í stað fangelsis allt að 6 árum.
Þá er lagt til að lögfest verði ákvæði um nokkur atriði sem verka skuli til þyngingar við ákvörðun refsingar fyrir nauðgun en eitt þeirra er ungur aldur þolenda. Þá er lagt til að ákvæði um refsingu fyrir að stunda vændi sér til framfærslu falli niður. Þess í stað verði lögfest ákvæði um refsinæmi þess að bjóða fram, miðla eða óska eftir kynmökum við annan mann í opinberum auglýsingum. Í frumvarpinu um meðferð sakamála er að finna tillögur um þrískiptingu ákæurvaldsins en þær byggjast á hugmyndum Boga Nílssonar, ríkissaksóknara, sem ráðuneytið beindi til réttarfarsnefndar. Ýmis ágreiningsefni eru þó óleyst.
Einnig er kveðið á um refsingu fyrir samræði eða önnur kynferðismök við barn undir 14 ára aldri, að refsimörk verði þau sömu og fyrir nauðgun. Ráðuneytið mun setja frumvörpin á heimasíðu sína til að hvetja til málefnalegra umræðna áður en dóms- og kirkjumálaráðuneytið tekur endanlega ákvörðun um í hvaða búningi þau verða lög fyrir Alþingi. Óskað er eftir ábendingum og umsögnum fram til 1. nóvember 2006.
þat hafið þið það kæru lesendur
Pís át
The antí rapist eeeskimó
föstudagur, ágúst 25, 2006
jafnræðisregla, rassaskora og kaffibolli
Viskan og skemmtilegheitin eru hérna í fyrirrúmi, held meira segja að það sé ekki einu sinni rigning, mér líður bara þannig..... þetta er uppáhaldstíminn minn, deffó
Ella, beilaði á mér þannig að ég sit á milli mr. klórpungs og herra rassaskoru..... SEX TOYS...
jæja meginreglur einkamálaréttarfars, munnleg málfmeðferð, here we go....
Eskimó, says elló....
p.s hef ekkert getað bloggað, vegna þess að bloggerinn virkar ekki heima og er því komin í smá stræk....
laugardagur, ágúst 19, 2006
Happí blogg turns bad
mánudagur, ágúst 14, 2006
U never walk alone, walk on, walk on
reynum að hafa þetta styttra.....
Það er margt að pirra Eskimóann í dag.... ekkert samt sem ég þarf að tjá mig um hér..... svefnleysi, hálshnykkur, eirðarleysi og ofdrykkja á kaffi....
Ok ein krísa.....
- þarf að borga skólagjöldin á morgunn and I'm 4o þás short, what do you do, what do you do....
- sé ekki fram á að kaupa neina einustu bók á næstu dögum, what do you do, what do you do.....
- tengdó eru að koma í heimsókn 20 ágúst og skólinn byrjar daginn eftir, what do you do, what do you do......
- er að fara með liðið austur á land vikuna eftir og missi af 2 skóladögum í kjölfarið, what do you do, what do you do......
- á örugglega ekki eftir að læra mikið fyrstu 3 vikurnar, what do you do, what do you do.....
Týpískt fyrir Eskimóann að fá tengdó um leið og skólinn byrjar, það er ekki eins og hann hafi ekki getað tekið á móti þeim í byrjun ágúst eða lok júlí þegar allt var á fullu í að sitja á rassgatinu og horfa út í loftið......
RS PISTILL (upphitun fyrir annað kvöld)
Jæja Josh og Jill fóru heim í síðustu viku, sé pínu eftir Josh! Eskimóinn didnt see that comin..... Var að horfa á las vegas vefþáttinn á RS heimasíðunni og ástralinn og fokkin kanadana maðurinn CANT HOLD THEIR DRINKS!!!! hahahah punks!!!!
Magnificent hlustaði ekki á ráð Eskimóans sem birt voru bæði í síðustu og þarsíðustu viku og ákvað að syngja annað David Bowie cover, BOTTOM 3 FOR DEFINET!!!
Storm með I will survive, DONT LIKE THAT CHOISE....
Æi allt frekar leim í lagavalinu þessa vikuna, eina sem mig hlakkar til að sjá er Z með frumsamið lag..... sjáum hvað setur.....
Jæja nýjung á www.elsauk.blogspot.com
WHO I LOVE THE MOST
Í hverri viku ætla ég að skrifa um manneskju sem er mér kær og deila með ykkur leyndarmáli um hana.... Fyrstur í röðinni er góður vinur minn og frændi, sálufélagi með meiru mr. Hafsteinn Þór Auðunsson. Steini er einn af dyggustu lesendum þessa bloggs en hefur haldið kúlinu með því að kommenta sem minnst, klár strákur......
Steini og ég ákváðum að vera bestu vinir þegar ég var 5 mán og hann nýfæddur. Við erum svart og hvítt.... Hann er þessi rólega týpa, svo yfirvegaður, klár, listrænn, hæfileikaríkur og góðhjartaður (what I love the most).... þið sem þekkið eskimóann vitið að þessi lýsingarorð passa engan veginn við mig......
Steini tekur öllum eins og þeir eru, hann elskar frænku sína og hefur aldrei reynt að breyta neinu í fari mínu. Hann er bæði góð og falleg sál...... Við höfum alltaf verið ótrúlega náin: treystum hvor öðru fyrir öllu og hjálpum hvor öðru þegar erfiðleikar steðja að....
Hann var sá EINI sem kom og heimsótti mig þegar ég bjó úti í Englandi, og hann var líka sá eini sem ég vildi að kæmi..... I LOVE YOU MAN.....
Leyndarmál 1: Þegar við vorum lítil þá sagði Steini við mömmu sína og pabba að hann væri skotinn í mér og þau þurftu að útskýra fyrir honum að við værum frændsystkin (ath. við vorum það lítil að þau gátu ekki notað orðið sifjaspell, hahaha).....
Leyndarmál 2: Ég öfundaði hann alltaf af því að hann var betri í fótbolta en ég..... og ég vissi líka að þegar ég skoraði þá var það af því hann "leyfði" mér að skora bara til að vera góður við frænku sína...... ohhhhhhh
Staðreyndir: Steini er 23 ára, býr rétt hjá mér (hinum megin við götuna), hann er skírður eftir afa okkar (steinafa) og ég er skírð eftir Ömmu okkar (elsu ömmu) og þess vegna hafa margir talið að við náum svona vel saman þ.e we are the mini mí elsa og steini, hann er tónlistarmaður og leikari, vinnur í pennanum og ÉG ELSKA HANN AF ÖLLU MÍNU HJARTA (god knows hvar ég væri ef hann hefði ekki verið til staðar í mínu lífi)......
Oooooh hann er bara svo yndislegur og fullkominn alveg......... ég dýrka manninn.................
Jæja þetta verður ekki lengra, þessa nóttina (þó svo að ég gæti talað endalaust um steina frænda) ....
Bretinn þarf tölvuna, og eskimóinn þarf að fara í sturtu....
pís át
The stinkin eskimó
p.s ÁFRAM LIVERPOOL ............. djö vorum við góðir í gær. Erum að horfa á fyrsta sætið, deffó!!!!!!!!!!!!!!!
fimmtudagur, ágúst 10, 2006
Sleepless in the Hills of Harlem

kl. er 02:28.......
Ég hef komist að svolitlu um sjálfa mig sem mig langar að deila með ykkur..... það tók mig 23 ár að fatta að ég á við svefnvandamál að stríða.....
Nokkrum sinnum á ári fer ég í gegnum nokkrar vikur án þess að sofa á nóttunni. Ég vaki til 6 á morgnana fer svo að sofa og sef til 12 á hádegi, legg mig nokkrum sinnum yfir daginn, síðasti lúrinn er rétt eftir kvöldmat og svo hefst tíminn þar sem Eskimóinn situr og horfir út í nóttina á meðan allir hinir sofa......
Það er akkúrat ekkert sem ég get gert við þessu vandamáli mínu, svefntöflur virka ekki, breytti mataræðinu-gékk ekki, hef prófað að fá mér nokkra bjóra til að ná mér niður sem hefur ekki gengið eins og ég vonaðist eftir, enda oftast á kojufyllerí talandi við sjálfa mig..... Síðasta tilraunin var að reyna að þreyta mig yfir allann daginn þ.e fara í ræktina, út að hlaupa, sund.... ekkert ekkert ekkert virkaði...
Hjá mér er þetta spurningin um hugarástand. Þó svo að ég sé að deyja úr þreytu kl. 11 þá klikkar eitthvað í hausnum á mér um leið og ég leggst í rúmið, and then its no turning back....
Ég veit ekki hvort að ég sé óánægð með þetta svefnvandamál mitt....
Í fyrsta lagi þá elska ég nóttina, þ.e ég vinn best á nóttunni, skiptir ekki máli hvort það sé skólinn, skrifamennskan eða eitthvað annað, róin nær tökum á mér.....
Í öðru lagi þá er ég svo mikill lóner að ég elska að eiga smá tíma fyrir sjálfa mig.... HEI! ekki misskilja mig, ég elska bretann minn af öllu mínu hjarta og hann er það besta sem nokkurn tímann hefur hent mig og ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki kynnst honum.... VÁ VÆMIN.... Mér finnst bara gott að vera ein með sjálfri mér og safna saman öllu því sem er að hringsnúast í hausnum á mér..... Þetta er svona "selfmade theraphy for the Eskimó".......
Og í 3 og síðasta lagi þá er allt svo miklu skemmtilegra á nóttunni: þættirnir í sjónvarpinu eru betri, dvd myndirnar mínar eru betri, geisladiskarnir mínir eru betri og netið er betra......
Það sem er ekki gott við svefnvandamál mitt er að dagarnir eru ónýtir þegar ég sef ekki á nóttunni.... ég sef stutt og ílla yfir daginn, er alltaf þreytt, með hausverk, lystarleysi og lít út eins og draugur (það er kannski ekkert nýtt)......
Bretinn þolir þetta ekki og reynir að halda mér vakandi yfir daginn, þ.e hann hringir á 1 klst. fresti og kemur heim í hádeginu til að vekja mig..... sem endar oftast með riflildi þar sem ég er of þreytt til að nenna að standa upp úr rúminu......
Það sem er svo skrýtið við þetta svefnvandamál er að ég veit nákvæmlega hvenær á árinu það gengur yfir.... 4 sinnum á ári
- Byrjar í jólaprófunum og stendur fram yfir afmælisdaginn minn! Frá því í fjölbraut hef ég farið í gegnum 3 síðustu vikurnar í desember án þess að sofa..... læri á nóttunni fyrir próf, kem heim eftir prófið og sef allann daginn..... vítahringur sem heldur áfram eftir að prófum líkur og jólin ganga yfir, rauðvínsdrykkja með hinum eskimóunum og dvd gláp langt fram á nótt tekur við..... er farin að sofa á nóttunni um leið og skólinn byrjar aftur 5.jan- það klikkar ekki....
- Næsta svefnleysi er í maí þegar vorprófin byrja.... prófstressið aftur...... stendur yfir í sirka 3 vikur.... ógeðslega þreytt og uppgefin bæði á líkama og sál eftir þessa törn..... GREAT WAY TO START THE SUMMER.....
- Svo kemur versta svefnleysið sem stendur yfir 2 síðustu vikurnar í júlí og fram í ágúst. Þegar sólin er á lofti vakir Eskimóinn...... Ég get bara ekki sofið þegar er bjart á nóttunni..... Ég þoli ekki að vaka á nóttunni í júlí vegna þess að það er svo fokkin bjart og mér líður eins og að það sé dagur, fæ ekki þessa ró sem fylgir nóttunni.... Ágúst er mun skárri....
- Október.... 3 vikur.... Ég man eftir að hafa fengið fyrsta október svefnleysið þegar ég var 11 ára.... Ég gat bara ekki sofið! Mamma og pabbi höfðu sett sjónvarp inn í herbergið mitt og þar sat ég alla liðlanga nóttina og skrifaði ljóð og sögur í bsb stílabókina mína á meðan ég horfði á stillimyndina á RÚV.... Síðan þá hef ég aldrei sofið á nóttunni þessar 3 vikur í október......
Þetta svefnvandamál er ekki nýtt af nálinni í fjölskydunni.... Pabbi á við svipað vandamál að stríða þ.e hann á erfitt með að sofna. Við þurftum alltaf að læðast um húsið eins og litlar mýs þegar hann var að reyna að sofa.... BELIVE ME þú vildir ekki vera ábyrgur fyrir að vekja gamla manninn eftir að það hafði kannski tekið hann 3 klst. að ná að sofna... Shit við Eymar vorum alltaf svo vitlaus að langa í popp um leið og kallinn var farin að hrjóta.... Við gátum aldrei poppað á meðan hann var vakandi.... NEII popp löngunin kom um leið og hroturnar og þá byrjaði riflildið um hver ætti að sjá um að poppa..... Oftast endaði það að við gerðum það saman til þess að ábyrgðin færðin á báða bóga ef sá gamli myndi nú óvænt birtast í dyragættinni urrandi reiður -SYSTKINAKÆRLEIKURINN- ..... Eymar var alltaf betri en ég að ganga hljóðlega um húsið..... ég er svo sljó, ég gleymdi mér alltaf og skellti ískápnum eða lét skrjáfa í brauðpokanum..... ohhhh good times good times....
Ég hef loksins analæsað svefnleysi Pabba míns gamla.... Hann er sjómaður og vinnur á dag og næturvöktum til skiptis, s.s. allt í fokki hvað varðar svefntíma og því erfitt fyrir hann að koma rútínu á svefninn..... Auk þess sem maðurinn drekkur meira kaffi en heil húsaröð í kólumbíu.......
Eymar bróðir fer líka í gegnum tímabil þar sem hann vakir á nóttunni og sefur á daginn, held samt að það hafi meira með aldurinn og skemmtanalífið að gera! Ég held að þetta eigi eftir að eldast af honum greyinu.....
Ég get bara ekki analæsað af hverju ég á við svefnleysi að stríða..... Jú Jú það er komið á hreint "IM A NIGHT PERSON", en af hverju er ég þá ekki alltaf svona, meina af hverju kemur þetta í ákveðnum törnum????? Mér líður stundum eins og eins og ég sé Edward Norton í Fight club..... eða kannski ekki alveg, þetta er ekki svo slæmt......
Yoko Ono svaf ekki á nóttunn, hún þurfti þess ekki..... Hún tók það sem kallað er POWER NAPS yfir daginn, 20 mín í hvert skipti og það dugði henni..... EKKI MÉR!!!! Margir af mestu snillingum okkar tíma fóru í gegnum lífið án þess að sofa á nóttunni..,, EN ÉG ER EKKI SNILLINGUR!!!! Ohhhhhhhh ég er ekki að nenna þessum hugleiðingum.... Ég elska að sofa og vildi óska þess að ég gæti sofið eðlilega eins og annað fólk: ekki of mikið, ekki of lítið og á eðlilegum tímum.....
Eitt af því besta við andvökunætur er að finna skemmtilegar síður á netinu sem ég verð algjörlega húkkt á....
LIKE:
You Tube er algjört möst!!! ALLT sem þér dettur í hug finnurðu á þessari síðu: tónlistarmyndbönd, viðtöl, stand up, bolabíta ást U NEIM IT... Fokkin snilld!! http://www.youtube.com/watch?v=YOzyPVyWVqU - bara fyndið
That girl emily....... Einhver geðveik gella frá US að blogga um fyrrverandi eiginmann sinn sem hélt fram hjá henni með bestu vinkonu hennar...... hún er eitthvað að hefna sín á greyinu með því að gera honum lífið leitt.... some people some people! mjög áhugavert...... http://www.thatgirlemily.blogspot.com/
Radio blogg club..... Steini frændi sýndi mér þessa og hún er ómissandi fyrir Eskimóann á andvökunóttum sem þessum..... Þú skrifar bara lagið sem þig langar að hlusta á og það kemur, og það besta við þetta allt saman er að þú þarft ekki að downlóda neinu, bara liggna aftur augunum og njóta tónlistarinnar.......http://www.radioblogclub.com/ - ég elska Steina frænda, á morgunn skal ég segja ykkur af hverju.......
Laz, vinur bretans...... my speisið hans er hreinasta snilld. http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendID=6421258
Öll svindlin fyrir Grand theft auto...... gerir Eskimóanum auðveldara fyrir http://www.gamespot.com/ps2/action/gta4/hints.html
Bloggið hjá Radiohead..... Thom York er yndislegur og mjög áhugaverður maður, hann allavega fékk Tony Blair til að hlusta á sig!!!!! Farið inn á dead air space og þar fáið þið Radiohead blogg beint í æð.....http://www.radiohead.com/
Allir ættu að lesa þetta.... Blogg frá hinu stríðshrjáða Líbanon..... Við eigum öll að vita hvað er að gerast í "trúarstríðinu "í miðausturíkjum..... Þó svo að ríkisstjórn okkar hefur ákveðið að halda að sér höndum og skipta sér ekki af morðum á saklausum borgurum þá þýðir það ekki að við eigum að gera það sama..... Lesið þetta blogg og spurjið ykkur hvort það sé ekki eitthvað sem vestrænu ríkin ættu að gera til þess að binda enda á þennan harmleik........ http://blogg.aftonbladet.se/3629/
Spurningakeppni þar sem keppt er live.... ekkert smá gaman, sérstaklega því það er hægt að spjalla við hina keppendurna á meðan leikar standa.... Eskimóinn er fastagestur......... http://www.triviabox.com/
Heitasta slúðrið í dag.....http://lipstick.com/
Og svona í lokin ......allt rockstar supernova slúðrið http://www.supernovafans.com/index.php og officially rockstar heimasíðan, spjallborðin og öll vidjóin http://rockstar.msn.com/.......
Jæja kæru vinir og fjölskyldumeðlimir........... Klukkan er að ganga 6 og bretinn fer bráðum að vakna til að fara í vinnuna...... ætli ég fari ekki lúra mér....
pís át
Eskimó Zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz
